|
Ecomstation er stýrikerfi fyrir einkatölvur og
netþjóna sem eru byggðir í kring um 386
örgjöfum eða nýrri samhæfðum
útfærslum eins og Pentium eða Athlon, Ecomstation
(héreftir ECS) má einnig keyra á örgjöfum sem
herma eftir 386 örgjöfum eins og til dæmis Intel Itanium.
ECS á uppruna sinn í gamla góða OS/2
stýrikerfinu frá IBM, en önnur stýrikerfi sem
að byggja á því meira eða minna eru Windows NT em
kvíslaði frá hinum á fyrri hluta 10
áratugarins (nýustu útgáfurnar af NT heita XP*),
smábiðlararnir Warpspace on demand og JavaOS (JavaOS ekki lengur
í framleiðslu), Warp Server og WSeB sem að er samkrull af OS/2
kjarna og netmiðlaranum sem að Microsoft og IBM
þróuðu í byrjun 10 áratugarins (sami
grunnkóði í XP professional server og 2003 pro server).
eComStation (héreftir eCS) er hinnsvegar sú útgáfa
sem líkust er gömlu biðlara útgáfunni af OS/2,
það má að vísu fá miðlara
útgáfu af eCS an hún er nokkuð dýr og eins og
margir hafa tekið eftir þá eru minni og minni þörf
á miðlurum fyrir smærri notendur þessa dagana. Frekari
upplýsingar má fá hjá ecomstation.com. Nýasta
útgáfan af eCS er 1,2 og má nálgast hana meðal
annars hjá Mensys
í Hollandi, athugið að útgáfa 1,1 inniheldur ekki
Lotus Smartsuite pakkan eins og útgáfur 1,0x gerðu en
það má kaupa hana með afslætti er þú
verslar stýrikerfið (sem svokallaður "Application Pack"),
þú getur einnig keypt fjölörgjafa kjarna fyrir um 100
Evrur eða svo og ólíkt Windows XP og Linux þá
skiftir engu máli hversu marga ögrjafa þú notar,
verðið á pakkanum og þjónustusamningnum er
það sama ótengt földa örgjafa.
Þú getur einnig fengið OS/2 frá IBM en
það getur verið erviðleikum bundið að finna
það, af biðlara útgafunum þá hafa þeir
2 útfærslur, þar að segja þú getur
fengið uppfærslu á útgáfu 4 og þá
færðu áskift af uppfærslum og í grunnin er
þessi útgáfa eins og nýrri útgáfur af
OS/2 fyrir utan að þú getur ekki nýtt þér
LVM eða JFS (þeas. þú ert bundin við Fdisk).
"Convenience Pack" er nýasta biðlara útgáfan af OS/2,
grunn stýrikerfið hefur verið endurbætt og uppært
frá gömlu W4 útgáfunni þar á meðal
LVM og JFS en notendaviðmótið og hlutbundi kjarninn (WPS) hafa
hinns vegar ekki verið mikið uppfærð, þar sem
þetta er dýrari lausn en eCS sem að inniheldur
þónokkuð af WPS endurbótum og viðbótum
þá er raunverulega ekki eftir miku að sækjast.
|